Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Raddir barna á Rás 1

28.02.2009

Helgina 28. febrúar til 1. mars verða börn og ungt fólk í brennidepli í dagskrá Rásar 1 en Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, mælist til þess að fjölmiðlar helgi 1. mars röddum barna og ungmenna.

Í tilefni af því taka nokkrir nemendur í  7. EP þátt í dagsskrárgerð undir stjórn Steinunnar Harðardóttur. Þær Hjördís og Hekla tóku viðtal við Einar Bjarnason um rekstur Bláfjallaskíðasvæðisins og Ísleif Friðriksson sem fer með ljóð fyrir gesti þar. Matthildur og Haukur ræddu við Hilmar Malmkvist í Náttúrustofu Kópavogs og spurðu hann margra góðra spurninga um vatn. Salka og Andrea heimsóttu hestaleiguna í Laxnesi  og  ræddu við Þórarinn um staðinn og  hestaútgerðina. Þáttastjórnandinn Steinunn tók síðan  viðtal við  Jóhönnu um Austurríki.

Til baka
English
Hafðu samband