3. og 5. bekkur hreinsa lækinn
Garðabær, Hofsstaðaskóli og Fjölbrautarskólinn í Garðabæ undirrituðu samstarfssamning þann 16. maí um að skólarnir tækju Arnarneslækinn í fóstur frá uppsprettu til ósa. Í samningnum kemur m.a. fram að nemendur skólanna tíni rusl reglubundið meðfram lækjarbökkunum og veiði rusl úr læknum. Ruslið er greint og það skráð.
Nemendur Hofsstaðskóla skoða einnig fuglalífið reglulega, skrá niðurstöður og taka myndir. Niðurstöðunum er skilað til umhverfisnefndar Garðabæjar og Fjölbrautarskólans. Skólarnir báðir sjá um kynning á lífríki lækjarins, uppsprettu og verkefnum til að halda læknum hreinum og leiðum til mengunarvarna.
Þessa vikuna taka allir nemendur skólans þátt í hreinsun lækjarins. Þeir skipta honum með sér og fara bekkirnir út tveir til þrír á hverjum degi og taka til hendinni.
