Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Aðalfundur foreldrafélagsins og fyrirlestur Pálmars Ragnarssonar

29.03.2022

Vinsamlega takið daginn frá kl 20:00,

Dagskrá- Örstutt og skemmtileg aðalfundastörf - Dagskrá vetarins-og að lokum fyrirlesturinn

 

Kl. 20:20 – 21:20 Fyrirlestur um jákvæð samskipti. Boðskapur fyrirlestrarins er hvernig foreldrar geta saman myndað öfluga heild og einnig er farið yfir atriði sem geta hjálpað til í samskiptum foreldra og barna.

Við fáum Pálmar Ragnarsson í heimsókn en hann er fyrirlesari og körfuboltaþjálfari sem hefur slegið í gegn með fyrirlestrum um jákvæð samskipti. Fyrirlesturinn hefur hann flutt fyrir marga af stærstu vinnustöðum landsins, ýmis ráðuneyti og fleiri. Í fyrirlestrinum fjallar hann á skemmtilegan hátt um það hvernig við getum náð því besta úr fólkinu í kringum okkur með góðum samskiptum. Samhliða því tekur hann mörg skemmtileg dæmi af samskiptum barna á íþróttaæfingum og yfirfærir á foreldrahópinn auk þess sem hann segir frá niðurstöðum rannsóknar sem hann gerði á samskiptum á vinnustöðum á Íslandi í meistaranámi sínu í Háskóla Íslands. Þetta er fyrirlestur sem fær fólk til að hlæja og hugsa á sama tíma.

sjáumst

Til baka
English
Hafðu samband