Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Góð og holl næring er undirstaða þess að nemendur nái árangri í námi og að þeim líði vel.
Mikilvægt er að allir nemendur borði staðgóðan morgunverð áður en þeir mæta í skólann.

Garðabær hefur gert samning við Skólamat ehf. um framleiðslu og framreiðslu á mat í grunnskólum Garðabæjar.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um skólamálsverði og einnig má nálgast upplýsingar á vefnum hjá Skólamat um verð og matseðla. Þar er einnig hægt að skrá nemendur í áskrift www.skolamatur.is

Nestistími
Skólinn leggur mikla áherslu á að nesti barnanna sé hollt og gott. Nemendur hafa með sér létta hressingu að heiman í nestistímann að morgni, gróft brauð, ávexti eða grænmeti. Orkustangir, sætabrauð, kex o.þ.h. er ekki leyfilegt. Foreldrar yngri barna athugi sérstaklega að skera niður ávexti og grænmeti og forðast ílát sem flókið er að opna. Foreldrar eru beðnir um að taka tillit til umhverfisstefnu skólans og stilla í hóf notkun einnota umbúða og senda börnin með vatn eða djús í brúsum.
Í nestistímanum er leitast við að skapa notalegt og rólegt andrúmsloft.

Sætindi, tyggigúmmí og gosdrykkir er ekki leyft á skólatíma. 

Drekkum vatn
Í öllum stofum er hægt að fá vatn að drekka hvenær sem er dagsins. Börnin eru hvött til þess að koma með glas eða brúsa að heiman sem þau geyma í skólanum. Ekki er heimilt að koma með gosdrykki eða orkudrykki í skólann.

Hádegisverður
Nemendum stendur til boða að vera í reglulegri áskrift að heitum málsverði. Matseðla ásamt nánari upplýsingum er að finna á vefsíðunni hjá Skólamat.
Þeir sem ekki eru í mataráskrift koma með nesti að heiman og borða það í matsalnum. Hægt er að hita mat í örbylgjuofnum og brauð í samlokugrilli. Nemendum í 1. – 4. bekk er ekki heimilt að meðhöndla heitt vatn úr hitabrúsum eða hita vatn í örbylgjuofnum.
Nemendur sitja til borðs með bekkjarfélögum sínum og ganga sjálfir frá eftir matinn.
Rík áhersla er lögð á góða umgengni og prúðmennsku í matsal.
Sjá reglur í matsal

English
Hafðu samband