Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hofsstaðaskóli hefur verið “Skóli á grænni grein” frá árinu 2005 en þá hóf hann þátttöku í alþjóðlegu verkefni sem er hugsað til að efla umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á "Græna grein" í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár, en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Hofsstaðaskóli fékk Grænfánann í fyrsta skipti föstudaginn 16. nóvember 2007, endurnýjun á honum 2. febrúar 2011 og endurnýjun í þriðja skipti 10. október 2013.

Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.

Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.

 

English
Hafðu samband