Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Baráttan gegn matvælasóun í Hofsstaðaskóla-til verndar náttúrunni

Vikuna 7. – 11. mars 2016 tóku nemendur í Hofsstaðaskóla þátt í verkefninu Barátta gegn matvælasóun – til verndar náttúrunni á vegum Norden í skolen. Matarafgangar voru vigtaðir í matsalnum í eina viku hjá hverjum bekk fyrir sig og niðurstöður skráðar á vef Norden í skolen en þar með voru bekkirnir þátttakendur í verkefninu og hafa möguleika að vinna 5000 DKK (95.000 ISK),sem verður dregið um á hverju Norðurlandanna í lok verkefnisins. Sjá nánar á: http://nordeniskolen.org/is/bar%C3%A1ttan-gegn-matars%C3%B3un

Nemendur vissu ekki af verkefninu fyrsta daginn en síðan fengi þeir fræðslu um verkefnið og jafnframt var tekin umræða um matarsóun í heiminum og mikilvægi þess að minnka hana til að vernda umhverfið og auðlindir jarðar. Það var undravert að sjá hversu meðvitaðir nemendur urðu um að taka sér hæfilega skammta af mat þannig að sem minnst yrði hent. Nemendur sýndu það og sönnuðu að þeir geta lagt sitt af mörkum til að minnka matarsóun. Að meðaltali hentu nemendur 10 grömm af mat á dag en í 5. AMH var engum mat hent alla vikuna. Meðaltals minnkun frá fyrsta degi miðað við meðaltal næstu fjóra daga var meira en helmings minnkun eða úr 18 g að meðaltali á mann fyrsta daginn í 8 g að meðaltali á dag næstu fjóra daga. Frábær árangur sem vonandi heldur áfram bæði í skólanum og inn á heimilum barnanna. Sjá niðurstöður á myndriti.

 

 

 








Markmiðið með þessu verkefni er að fræða nemendur og gera þá meðvitaðri um að hver og einn getur haft áhrif í umhverfismálum. Nemendur þurfa að halda áfram að standa sig vel í skólanum og vonandi skilar umræðan sér inn á heimilin þannig að öll fjölskylda verði meðvituð um að hún geti tekið þátt í þessu mikilvæga verkefni - að minnka matarsóun til verndar náttúrunni. Við eigum bara eina jörð!

Vigtun á matarafgöngum í matsal Hofsstaðaskóla að þessu sinni er ekki sú fyrsta sem þar hefur farið fram. 2013 og 2014 fór fram vigtun til að sporna gegn matarsóun og síðan núna 2016 í þriðja sinn. Á meðfylgjandi myndriti má sjá mikla breytingu til batnaðar síðan fyrri mælingar fóru fram en matarsóunin núna var rúmlega sex sinnum minni en 2014, fór úr 66 grömmum að meðaltali á nemanda 2014 í 10 grömm núna. Eflaust má rekja breytinguna m.a. til þess að á síðast skólaári var tekin upp sú nýbreytni í skólanum að frumkvæði nemenda að þeir skammta sér sjálfir í matsal og hefur það gefist vel. Þar með geta nemendur betur stjórnað hvað og hversu mikið þeir fá sér á diskana og þar með dregið úr matarsóun. Sannarlega glæsilegur árangur.

 

English
Hafðu samband