1. grein Félagið er foreldrafélag Hofsstaðaskóla. Félagar teljast allir forráðamenn nemenda skólans.
2. grein Markmið félagsins er að:
· vera samstarfsvettvangur foreldra sem eiga börn í skólanum.
· efla og tryggja gott samstarf foreldra og starfsfólks skólans.
· styðja heimili og skóla við að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði.
· koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál.
· standa vörð um réttindi barna til mennta og aukins þroska.
3. grein Tilgangi sínum hyggst félagið ná m.a. með því að:
· skipuleggja og halda utan um starf bekkjarfulltrúa í hverjum bekk
· koma á umræðu- og fræðslufundum um uppeldis- og skólamál.
· standa að upplýsingamiðlun til foreldra m.a. með útgáfu fréttabréfs og halda úti heimasíðu foreldrafélagsins þar sem birtar eru fundargerðir og annað er viðvíkur starfsemi félagsins
· veita skólayfirvöldum lið svo að aðstæður til náms og félagslegra starfa verði sem bestar
· styðja og efla hverja þá starfsemi, sem stuðlar að auknum þroska og menningu skólans.
· taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög, svæðaráð og landsssamtök foreldra
4. grein Stjórn félagsins skipa sex foreldrar/forráðamenn. Stjórn skal kjörin til tveggja ára í senn þrír stjórnarmenn annað hvert ár. Stjórnin skiptir með sér verkum. Auk formanns skal stjórnin skipuð varaformanni, ritara, gjaldkera og tvemur meðstjórnendum. Aldrei skulu fleiri en þrír ganga úr stjórn í einu.
5. grein Bekkjarfulltrúar starfa á vegum foreldrafélagsins sem setur þeim starfsreglur. Bekkjarfulltrúar mynda fulltrúaráð foreldrafélagsins. Hlutverk bekkjarfulltrúa er að efla og styrkja samstarf foreldra og barna og leitast við að treysta samband heimilis og skóla innan hverrar bekkjardeildar með nánu samstarfi við umsjónarkennara. Stjórn foreldrafélagsins ber ábyrgð á að í upphafi skólaárs séu kosnir tveir til þrír fulltrúar forráðamanna úr hverjum bekk til tveggja ára í senn. Í fyrsta bekk eru tveir eða einn kosnir til tveggja ára og einn til eins árs til að stuðla að því að allir hætti ekki á sama tíma.
6. grein Aðalfundur skal haldinn í maí ár hvert. Stjórnin boðar til fundarins í samstarfi við foreldraráð með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Í fundarboði skal kynna efni fundarins.
Verkefni aðalfundar:
· Kosning fundarstjóra og fundarritara
· Skýrsla stjórnar
· Skýrslur nefnda
· Lagabreytingar
· Reikningar lagðir fram til samþykktar
· Kosning fulltrúa í foreldrafélag
· Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
· Skýrsla foreldraráðs
· Kosning fulltrúa í foreldraráð
· Önnur mál
7. grein Stjórn foreldrafélagsins getur skipað nefndir um afmörkuð verkefni. Stjórnin ber ábyrgð á störfum nefnda og setur þeim erindisbréf.
8. grein Fulltrúaráðið skal koma saman eigi sjaldnar en þrisvar á skólaárinu og oftar ef þurfa þykir. Fyrsti fundur skal haldinn í upphafi skólaárs. Stjórn félagsins undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í bekkjardeildum og verkefni foreldraráðs. Fulltrúaráð skal aðstoða stjórn félagsins í stærri verkefnum.
9. grein Stjórn foreldrafélagsins skal ekki sinna klögumálum eða hafa afskipti af vandamálum er upp kunna að koma á milli einstakra foreldra og starfsmanna skólans.
10. grein Stjórn foreldrafélagsins er heimilt að óska eftir því að foreldrar greiði framlag til félagsins. Þetta framlag er innheimt árlega og ákveðið á aðalfundi.
11. grein Ákvörðun um slit félagsins verður tekin með einföldum meirihluta á stórnarfundi og renna þá eignir þess til skólans.
12. grein Lögum þessum má breyta með einföldum meirihluta á aðalfundi, enda sé lagabreytinga getið í fundarboði.