Smiðjur skólaárið 2024-2025
Skipulag á smiðjum, list- og verkgreinum
Nemendur í 1.-7. bekk fá kennslu í list- og verkgreinum og ýmsum öðrum greinum í 11-15 manna hópum. Kennt er í lotum og skipta nemendur um námsgrein 5-7 sinnum á vetri. Smíði, textíll, myndmennt og heimilisfræði er kennd í lotum í 2.-7. bekk í 80 mínútur tvisvar í viku. Sund er einnig í lotum hjá þessum árgöngum nema 2. og 4. bekk þar sem bekknum er skipt í tvo hópa og fer hvor hópur í sund einu sinni eina kennslustund á viku allan veturinn. Auk þess fá hópar úr 1., 3., 5. og 6. bekk, 1x40 mínútur í sund í lok skóladags.
Í 1. bekk er 1x60 mínútna lota í smíði, textílmennt og heimilisfræði og 2x60 mínútur í myndmennt. Fleiri greinar koma inn í smiðjuskipulag.