Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann hefst

08.09.2021

Göngum í skólann verkefnið hefst formlega þann 8. september Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Þess má geta að 6. október er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn.

Til baka
English
Hafðu samband