Hofsstaðaskóli

Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar
07.03

Skóladagatal næstu tveggja ára

Skóladagatal næstu tveggja ára
Skóladagatal leik- og grunnskóla næstu tveggja skólaára hafa verið samþykkt í bæjarráði og bæjarstjórn. Skólaárið 2024-2025 er...
Nánar
07.03

Páskabingó

Páskabingó
Hið árlega páskabingó foreldrafélags Hofsstaðaskóla verður haldið þriðjudaginn 19. mars í hátíðarsal skólans. Húsið opnar kl...
Nánar
28.02

Skákkennsla í Hofsstaðaskóla

Skákkennsla í Hofsstaðaskóla
Í vetur hefur Sigurlaug Stefánsdóttir umsjónarkennari á yngra stigi verið með skákkennslu í smiðjum í 4. bekk. Á síðasta skólaári...
Nánar
Fréttasafn

Hér fyrir neðan má sjá fréttir og myndbönd sem nemendur hafa unnið að.


Það var líf og fjör hjá nemendum 7. bekkja skólans þegar þeir fóru í skólabúðirnar á Reykjum í byrjun mars.

)


Árlega bjóða nemendur í 6. bekk foreldrum til glæsilegrar þorramáltíðar og skemmtunar. Eftir að skemmtiatriðum lýkur dansa allir saman.
Mikill undirbúningur liggur að baki slíkra þorrablóta. Starfsfólk, kennarar og foreldrar leggjast á eitt við að láta allt ganga upp. Krakkarnir 
lögðu mikið í skemmtiatriðin og var æft að kappi fram að þorrablóti. Í meðfylgjandi myndbandi sem þær Arndís og Signý í 7. ÖM klipptu má sjá örlítið frá undirbúningnum og þorrablótinu sjálfu.

 

Á þessum stað munu nemendur skólans spreyta sig í fréttamennsku. Fréttirnar munu birtast eftir því sem þær verða til.

Nóvember 2013

Október 2013
22. og 23. október var hefðbundið skólastarf leyst upp og haldnir Hofsstaðaskólaleikar. Markmið leikanna er að nemendur skólans vinni saman að fjölbreyttum verkefnum og að allir fái að njóta sín með einhverjum hætti. Hér fyrir neðan má sjá stutt myndband sem þær Arndís og Signý nemendur í 7. ÖM settu saman.

 


16. september 2013

Það var líf og fjör í íþróttahúsinu fimmtudagsmorguninn 12. september þegar íþróttakennararnir Hreinn og Hrafnhildur stóðu í ströngu við að hreyfiþroskaprófa alla nemendur í 1. bekk. Þau nutu góðrar aðstoðar 9 nemenda úr 7. bekk og umsjónarkennara barnanna. Þær Arndís og Signý litu við og settu saman þetta myndband.

 

31. maí 2013 

Mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson heimsótti skólann á sínum fjórða starfsdegi. Magnús, Signý og Natalía nemendur í 6. bekk skólans fengu að fylgja honum eftir í heimsókninni og taka við hann stutt viðtal. 

 

6. febrúar 2013

Nemendur í 6. bekk voru á fullu að undirbúa sitt árlega þorrablót. Þau settu saman þessa stuttu frétt til að leyfa ykkur að fylgjast með.

 

 

28. janúar 2013

Nú stendur yfir undirbúningur fyrir árlegt þorrablót hjá 6. bekk. Líflegt er um alla ganga þar sem nemendur æfa leikrit, dans, semja tónlist eða taka upp myndbönd. Tæknihópurinn sem ætlar að taka að sér að stýra tæknimálum á þorrablótinu sér einnig um að fylgjast með og flytja fréttir af undirbúningi þorrablótsins. Vonandi hafið þið gaman af.

 

English
Hafðu samband