Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hofsstaðaskóli tekur þátt í verkefninu ,,Gegn einelti í Garðabæ” sem er samstarfsverkefni grunnskóla bæjarins. Markmið verkefnisins er að koma á samræmdum vinnubrögðum til að fyrirbyggja og bregðast við einelti, bæta líðan og öryggi nemenda og skólabraginn í heild. Í eineltisáætlun Garðabæjar er birt skilgreining á einelti, hvernig starfsmenn eiga að bregðast við og vinna með það. Allir starfsmenn skólans taka þátt í verkefninu.

Í skólanum er starfrækt eineltisteymi sem situr einnig í verkefnastjórn „Gegn einelti í Garðabæ“. Í teyminu sitja:

Elínborg Þorsteinsdóttir, námsráðgjafi
Margrét Erla Björnsdóttir, deildarstjóri 5.-7. bekkja
Arnheiður Ösp Hjálmarsdóttir, deildarstjóri 1. - 4. bekkja

Ef grunur vaknar um einelti gagnvart þínu barni eða öðrum er mikilvægt að vitneskja um það berist til skólans sem fyrst. Einelti ber að tilkynna með formlegum hætti og með því að fylla út þar til gert eyðublað. Farið er eftir ákveðnu vinnuferli í meðferð eineltismála.

 

 

                              

 

 

 

English
Hafðu samband