Lög Nemendafélags Hofsstaðaskóla í Garðabæ
- Félagið heitir Nemendafélag Hofsstaðaskóla. Félagar eru nemendur í Hofsstaðaskóla.
 - Tilgangur félagsins er að vinna að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda skólans.
 - Stjórn félagsins er valin í byrjun skólaárs. Tveir fulltrúar úr hverjum bekk, einn stákur og ein stúlka og einn til vara af hvoru kyni.
 - Nemendur gefa kost á sér og síðan er dregið.
 - Stjórn nemendafélagsins velur fulltrúa nemenda í skólaráð og skal það gert á vorönn.
 - Deildarstjóri eldri deilda og skólastjóri bera ábyrgð á starfsemi Nemendafélagsins og boða til funda a.m.k. þrisvar sinnum á skólaári.
 - Ákvarðanir á fundum er færðar í fundargerð. 
 
Markmið nemendafélagsins í skólanum er að þar geti nemendur unnið að félags-, hagsmuna og velferðamálum nemenda og: 
• Þroskist félagslega 
• Verði hæfari að lifa og starfa í lýðræðisþjóðfélagi 
• Geti tjáð skoðanir sínar með eðlilegum hætti og unnið með öðrum að þroskandi viðfangsefnum. 
• Árgangafulltrúar komi skoðunum nemenda á framfæri á fundum þó svo að þær stangist á við eigin skoðanir. 
