Mikilvægt er að fatnaður og munir nemenda séu merktir þeim.
Talsvert af fatnaði nemenda verður eftir í skólanum. Aðallega er það ómerktur fatnaður sem kennurum og starfsmönnum hefur ekki tekist að koma til skila. Óskilafatnaður er flokkaður og varðveittur í geymslu í vestur anddyri, 1. bekkjar. Foreldrar og nemendur geta leitað að fatnaði í samráði við starfsfólk. Á foreldradögum, ákveðnum dögum sem eru rækilega auglýstir og við skólaslit er flíkunum raðað á borð í anddyri skólans og foreldrar hvattir til að gefa sér tíma til að athuga hvort þeir kannist við eitthvað og taka það sem þeim tilheyrir.
Óskilafatnaði sem ekki er vitjað þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar er komið í söfnunarkassa Rauða krossins.
Óskilamunir s.s. úr, lyklar, skartgripir o.fl. eru í hjá skólaritara.
Afar mikilvægt er að fatnaður og munir nemenda séu merktir þeim. Í skólanum er lögð áhersla á snyrtimennsku og góða umgengni ásamt því að sýna eigin eigum og annarra virðingu.
Í skólanum er lögð áhersla á snyrtimennsku og góða umgengni
ásamt því að sýna eigin eigum og annarra virðingu.