Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólahátíð Stóru upplestarkeppninnar í 7. bekk

22.03.2024
Skólahátíð Stóru upplestarkeppninnar í 7. bekk

Skólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hofsstaðaskóla fór fram á sal skólans við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 20. mars. Þar kepptu níu nemendur í 7. bekk um að taka þátt fyrir hönd Hofsstaðaskóla í Upplestrarkeppni Garðabæjar sem haldin verður fimmtudaginn 18. apríl nk. í Sjálandsskóla.

Nemendur lásu svipmyndir úr skáldsögunni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason og ljóð eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Einnig lásu nemendur fjölbreytt ljóð að eigin vali. Sara Sif Hjálmarsdóttir nemandi í 7. BE kynnti höfund texta og Haukur Orri Kjartansson í 7. MH kynnti ljóðskáld. Í hléi flutti Sandra Rut Sigurðardóttir nemandi í 7. RBG tvö mjög falleg tónlistaratriði.

Allir þátttakendur stóðu sig einstaklega vel í undirbúningnum og í keppninni sjálfri. Þeir fengu að gjöf frá skólanum viðurkenningarskjal, rós og ljóðabókina Grannmeti og ávextir eftir Þórarin Eldjárn. Tveggja manna dómnefnd sem skipuð var Hafdísi Báru Kristmundsdóttur skólastjóra og Kristínu Thorarensen bókasafnskennara, valdi tvo fulltrúa skólans og einn til vara til að taka þátt í Upplestarkeppni Garðabæjar. Eftirfarandi keppendur urðu fyrir valinu: Dagur Ingi Líndal Ingason í 7. BE og Guðrún Lilja Steinbach í 7. RBG sem aðalmenn og Erla Rún Pétursdóttir í 7. AÞ sem varamaður, við óskum þeim alls hins besta í Garðabæjarkeppninni. Þökkum öllum þeim sem tóku þátt í skólakeppninni, þar sem allir lögðu mikið á sig við undirbúning og æfingar undanfarnar vikur.

Sjá myndir á myndasíðu 7. bekkja


Til baka
English
Hafðu samband