Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skíðaferð 5. og 6. bekkja

09.02.2024
Skíðaferð 5. og 6. bekkjaFimmtudaginn 8. febrúar héldu nemendur í 5.og 6.bekk í skíða- og sleðaferð í Bláfjöll ásamt starfsfólki. Veðrið var mjög gott, sólin skein en þó nokkur kuldi var í fjallinu. Það tók nokkurn tíma að koma öllum í gegnum leiguna og á skíði því nemendur úr Sjálandsskóla voru einnig í fjallinu. Krakkarnir voru duglegir að skíða og hreyfa sig og þeir sem voru vanir skíðamenn voru duglegir að leiðbeina byrjendum. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og allir komu heilir heim. Það var dasaður en ánægður hópur sem renndi í hlað eftir flottan dag í Bláfjöllum. Myndir úr ferðinni eru komnar í myndasafn skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband