Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýsköpun
Nemendur í smíði fá kynningu á nýsköpun. Markmið er að vekja áhuga nemanda á nýsköpun og að þeir trúi því að þeir sjálfir geti fengið góða hugmynd.

Nemendur skrifa og skissa hugmyndir sínar á blað og geta sent þær inn í Nýsköpunarkeppni grunnskólabarna og Nýsköpunarkeppni Hofsstaðaskóla.

Nemendur í Hofsstaðaskóla hafa undanfarin ár tekið þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda NKG. Nemendur hafa staðið sig með afbrigðum vel. Þeir nemendur sem komast í úrslit keppninnar fá tækifæri til að taka þátt í vinnusmiðju á vegum NKG þar sem þeir útfæra hugmyndir sínar undir leiðsögn starfandi frumkvöðla og hitta aðra efnilega uppfinningamenn. Þeir hafa unnið gull- silfur- og bronsverðlaun í flestum flokkum undanfarin ár.

Vegna COVID-19 hefur nýsköpunarkeppni Hofsstaðaskóla ekki verið haldin síðan 2019 þar sem smiðjutímar hafa fallið niður og því sitja ekki allir nemendur við sama borð.

English
Hafðu samband