Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skrifstofa Hofsstaðaskóla er opin:

 Mánudaga-fimmtudaga frá kl: 8:00 – 15:30.
Föstudaga frá kl. 8:00-15:00

Forráðamenn eiga að skrá veikindi nemenda á Fjölskylduvef Mentor.is. 
Auk þess er hægt að tilkynna forföll á skrifstofu skólans með tölvupósti. Vakin er athygli á að ef veikindi vara lengur en einn dag skal tilkynna daglega.

Leyfisbeiðnir. Forráðamenn sækja um leyfi í Mentor.is

Að koma skilaboðum áleiðis til kennara
Foreldrum er velkomið að senda kennurum skilaboð með tölvupósti. Þeir geta hins vegar ekki vænst þess að fá svar fyrr en í lok dags eða næsta dag. Ef um áríðandi skilaboð til kennara er að ræða er best að senda nemandann með miða sem hann afhendir kennaranum. Hægt er að hafa samband við skólaritara í síma eða með tölvupósti sem kemur skriflegum skilaboðum til kennara. Símtöl eru ekki gefin inn í kennslustundir.
Þurfi foreldrar að sækja barn sitt áður en skóla lýkur er mælst til þess að þeir komi inn og sæki barnið. Ítreka þarf við foreldra að þeir tilkynni forföll barna sinna til skrifstofu skólans. Ekki sé nóg að senda tölvupóst til umsjónarkennarans.

Sími skólans er 590-8100

Netfang: hskoli(hjá)hofsstadaskoli.is
Skrifstofustjóri er Helena Vignisdóttir
 

 

English
Hafðu samband