Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að fylgjast reglulega með ástundun barna sinna á Fjölskylduvef Mentor
Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á uppeldi barna sinna. Á þeim hvílir sú skylda að börnin sæki skóla og að þau séu eins móttækileg fyrir þeirri menntun sem skólinn annast og framast er unnt. Skólinn aðstoðar foreldra í uppeldishlutverkinu og býður fram menntunartækifæri. Menntun og velferð nemenda er sameiginlegt verkefni heimila og skóla og samstarfið þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu, trausti, samábyrgð og gagnkvæmri upplýsingamiðlun. Stundvísi og góð ástundun er mikilvægur þáttur í að nemendum líði vel og þeir nái árangri í námi og taki framförum.
Í Hofsstaðaskóla er haldið skipulega utan um ástundun nemenda í Mentor. Sérstakur verkferill er til staðar ef skólasókn er ábótavant. Í grunnskólum Garðabæjar eru samræmdar vinnureglur í gildi. Annars vegar lúta þær að óútskýrðum fjarvistum og hins vegar að veikindum/leyfum. Hér má nálgast nánari upplýsingar um vinnureglurnar
Í Hofsstaðaskóla er notað punktakerfi sem fyrst og fremst er hugsað sem skráningarkerfi um mætingu, heimanám og fleira. Lögð er áhersla á að nemendur í 1. – 3. bekk séu ekki gerðir ábyrgir fyrir punktastöðunni. Það er mat skólans að foreldrar beri ábyrgð á ástundun ungra nemenda.
Sumir ástundunarflokkar eru tengdir stigum og lækkar ástundunareinkunnin samhliða auknum stigafjölda. Við 5 stig lækkar einkunnin í 9,5 og við 10 stig í 9,0 o.s.frv. Punktakerfið er fyrst og fremst hugsað til skráningar og til að vekja athygli á því þegar misbrestur verður á ástundun nemenda. Ástundunareinkunn
Punktakerfið er þannig uppbyggt :
Seint |
1 |
Fjarvist (óútskýrð) |
2 |
Skilar ekki heimanámi* |
1 |
Vantar gögn (áhöld og bækur)* |
1 |
Vantar íþróttaföt/sundföt* | 1 |
Veikindi | 0 |
Leyfi | 0 |
Las ekki heima | 0 |
Stendur sig vel í kennslustund | 0 |
Vann ekki í kennslustund | 0 |
Fer ekki eftir fyrirmælum | 0 |
Truflar kennslu | 0 |
Er ekki með nesti | 0 |
Horfði á íþróttir/sund | 0 |
*Í fyrsta sinn sem skráð er í flokkinn lækkar einkunnin ekki þ.e. allir fá eitt tækifæri.
Viðbrögð Hofsstaðaskóla við ástundun
Heimalestur-verkferill 1. - 4. bekkur
Heimalestur verkferill 5.-7. bekkur