Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nemendur matast í matsalnum og sér Skólamatur um að framreiða heitan hádegisverð til þeirra nemenda sem eru í áskrift. Þeir nemendur sem koma með nesti að heiman hafa aðgang að örbylgjuofni og grilli. Skólaliðar og aðrir starfsmenn annast gæslu og aðstoð við nemendur í matsal. Tveir umsjónarmenn úr hverjum bekk/hópi sjá um að ganga frá eftir matartímann, þurrka af borðum og raða glösum og hnífapörum fyrir næsta hóp. 

Í matsalnum eigum við að:

  • ganga hljóðlega um
  • bíða róleg í röðinni
  • nota góða borðsiði
  • taka ofan höfuðföt
  • ganga snyrtilega frá eftir okkur
  • setja borðbúnað í grindur
  • setja rusl í ruslafötur
  • þurrka af borðum
  • sækja glös og hnífapör

Alvarleg og/eða endurtekin brot á þessum reglum geta orðið til þess að nemandi missi rétt sinn til veru í  matsalnum til lengri eða skemmri tíma.

English
Hafðu samband