Nemendur matast í matsalnum og sér Skólamatur um að framreiða heitan hádegisverð til þeirra nemenda sem eru í áskrift. Þeir nemendur sem koma með nesti að heiman hafa aðgang að örbylgjuofni og grilli. Skólaliðar og aðrir starfsmenn annast gæslu og aðstoð við nemendur í matsal. Tveir umsjónarmenn úr hverjum bekk/hópi sjá um að ganga frá eftir matartímann, þurrka af borðum og raða glösum og hnífapörum fyrir næsta hóp.
Í matsalnum eigum við að:
- ganga hljóðlega um
- bíða róleg í röðinni
- nota góða borðsiði
- taka ofan höfuðföt
- ganga snyrtilega frá eftir okkur
- setja borðbúnað í grindur
- setja rusl í ruslafötur
- þurrka af borðum
- sækja glös og hnífapör
Alvarleg og/eða endurtekin brot á þessum reglum geta orðið til þess að nemandi missi rétt sinn til veru í matsalnum til lengri eða skemmri tíma.