Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagur

19.02.2009
Öskudagur

Á öskudag 25. febrúar 2009 ætlum við að eiga skemmtilega stund saman í skólanum, starfsfólk og nemendur. Skólastarf hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 12:15 að loknum hádegismat og telst því skertur skóladagur. Eins og aðra daga hafa nemendur með sér hollt og gott nesti í morgunhressingu og þeir sem ekki eru í mataráskrift hafa einnig með sér hádegismat.

Mælst er til að nemendur mæti í einhvers konar búningi. Vopn sem fylgihlutir við búninga eru leyfð en ekki til að berjast með.

Hefðbundin stundatafla er lögð til hliðar og í staðinn geta nemendur valið á milli ýmissa verkefna.
 Syngjum saman
 Diskótek
 Hreyfing í íþróttahúsi
 Öskupokasaumur
 Andlitsmálun
 Grímu- og hattagerð
 Tölvur
 Spil og tafl

Foreldrar eru velkomnir í skólann.

Tómstundaheimili: Nemendur sem eru alla jafnan í tómstundaheimilinu eftir skóla geta farið þangað kl. 12:15  þegar skóla lýkur. Vinsamlega láta vita í tómstundaheimilið á gretas@hofsstadaskoli.is ef þið ætlið ekki að nýta ykkur það.

Bestu kveðjur
skólastjórnendur

Til baka
English
Hafðu samband