Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagsfjör

25.02.2009
Öskudagsfjör

Mikið líf og fjör er í skólanum í dag, öskudag. Hér eru á sveimi alls kyns furðuverur. Krakkarnir flakka um skólann og heimsækja stofurnar og taka þátt í uppákomum. Í salnum stendur til boða "Að syngja með" eftir að því lýkur tekur við diskótek. Búið er að setja upp ýmsar stöðvar í kennslustofunum s.s. öskupokasaum, andlitsmálun, tölvur, spil, leiki og grímu og hattagerð. Í íþróttahúsinu gefst þeim sem kjósa tækifæri til að hreyfa sig.

Kíkið á myndirnar

Til baka
English
Hafðu samband