Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Grill og gaman

09.06.2009
Grill og gamanMánudaginn 8. júní var sannkölluð grillstemning í Hofsstaðaskóla. Stórt gasgrill var fengið að láni hjá skátunum, en það er dæmi um gott samstarf stofnana í Garðabæ.Við þökkum þeim kærlega fyrir lánið.  Skólastjórnendur grilluðu um 600 pylsur og starfsmenn hjálpuðust að við að afgreiða. Sólin skein í heiði á meðan verið var að grilla og nemendur sátu úti og borðuðu. Þetta er í annað sinn sem við höldum grillhátíð, en við stefnum að því að gera hana að árlegum viðburði. Takk fyrir matinn Skólamatur, en 8. júní var einmitt síðasti áskriftardagur í mat.
Til baka
English
Hafðu samband