Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gersemi Garðabæjar

23.09.2009
Gersemi Garðabæjar

6. bekkingar hafa verið læra um lífríki Vífilsstaðavatns þ.e. í og við vatnið frá því að skólinn hófst. Hluti af því ferli var að fara í útkennslu að Vífilsstaðavatni. 22. og 23. september. Nemendur hjóluðu að vatninu í góðu en svölu veðri þar sem þeir unnu í hópum ýmis verkefni.

Nemendur veiddu fiska og söfnuðu sýnum úr Vífilsstaðavatni og Vífilsstaðalæk undir stjórn Bjarna Jónssonar vistfræðings. Einnig unnu nemendur verkefni undir stjórn kennara þar sem þeir skoðuðu jurtir, fuglalíf og ýmis örnefni í umhverfinu. Sýni voru tekin með í skólann þar sem nemendur greindu þau og krufðu fiskana. Mikil ánægja og áhugi var í hópunum með áhugavert og skemmtilegt verkefni.

Kíkið á myndir úr vettvangsferðunum á myndasíðu skólans undir 6. bekkur og svo bekkjarheitunum.

Til baka
English
Hafðu samband