Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hjólað/gengið í skólann 5.-25. maí

03.05.2010
Hjólað/gengið í skólann 5.-25. maíNemendur Hofsstaðaskóla eru  hvattir til að hjóla eða ganga í skólann 5. – 25. maí en þá fer fram hvatningarverkefni ÍSÍ „Hjólað í vinnuna“. Eins og undanfarin ár munu starfsmenn skólans taka þátt í verkefninu. Samhliða því fer fram keppni milli bekkja á yngra og eldra stigi þar sem veittar verða viðurkenningar fyrir bestan árangur.
Dagleg hreyfing verndar og bætir heilsuna auk  þess verður aðkoma barnanna í skólann öruggari þar sem umferð við skólann minnkar.
Til baka
English
Hafðu samband