Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gleðileg jól

17.12.2010
Gleðileg jól

Í dag föstudaginn 17. desember lauk skólastarfinu á árinu 2010 með jólaskemmtunum. Dagurinn byrjaði á því að nemendur mættu í stofur þar sem haldin var stutt samverustund. Síðan var haldið á sal þar sem nemendur fluttu fjölbreytt skemmtiatriði, söng, dans og leik. Nemendur í 4. bekk fluttu helgileik. Sýningarnar tókum afskaplega vel og allir skemmtu sér.

Síðan var gert klárt fyrir jólaball þar sem gengið var í kringum jólatréð. Að því loknu héldu allir í jólafrí.

Starfsfólk Hofsstaðaskóla óskar nemendum, foreldrum og forráðamönnum ánægjulegrar samveru yfir jól og áramót og þakkar samstarfið á árinu.

Kennsla að jólaleyfi loknu hefst 5. janúar skv. stundaskrá.

Skoða myndir frá jólaskemmtunum

Til baka
English
Hafðu samband