Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Heiðruð fyrir störf sín

17.01.2011
Heiðruð fyrir störf sín

Kristrún Sigurðardóttir deildarstjóri eldri deildar hefur starfað við skólann í hartnær 35 ár. Henni ásamt öðrum starfsmönnum bæjarins sem hafa starfað í 25 ár eða lengur hjá bænum var boðið til móttöku í Garðaholti fimmtudaginn 13. janúar sl. Þar var þeim afhent bókagjöf fyrir góð störf í aldarfjórðung. Í ávarpi við þetta tilefni þakkaði bæjarstjóri þessum tryggu starfsmönnum fyrir störf sín í gegnum tíðina. Gunnar sagðist líta svo á að menn yrðu betri starfsmenn með aldrinum og að starfsfólkið hefði með nærveru sinni og störfum átt drjúgan þátt í að skapa bæjarbraginn í Garðabæ.

Sjá frétt á vef Garðabæjar

Til baka
English
Hafðu samband