Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kynningarfundur fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2011

03.03.2011
Kynningarfundur fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2011

Kynningarfundur verður í hátíðarsal skólans kl. 17:30 miðvikudaginn 16. mars. Nemendur kynna skólann sinn og segja frá því sem þeim finnst markverðast í starfinu. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið í fylgd starfsmanna og nemenda.

Börnin eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomin á kynningarnar. 

Foreldrum er einnig boðið að koma í heimsókn á skólatíma kl. 8.30 eða 13.10. Vinsamlegast gefið ykkur fram á skrifstofu skólans.

Sími skrifstofu Hofsstaðaskóla er 565-7033
Vefang Hofsstaðaskóla er www.hofsstadaskoli.is


 Grein í Garðapóstinum

Til baka
English
Hafðu samband