Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagur Hofsstaðaskóla

07.03.2011
Öskudagur Hofsstaðaskóla

Á öskudag 9. mars ætlum við að eiga skemmtilega stund saman í skólanum, starfsfólk og nemendur. Skólastarf hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 12:15 að loknum hádegismat og telst því skertur skóladagur. Eins og aðra daga hafa nemendur með sér hollt og gott nesti í morgunhressingu og þeir sem ekki eru í mataráskrift hafa einnig með sér hádegismat. Ath. ekki verður hægt að hita í örbylgjuofni né grilli þennan dag þar sem hluti nemenda borða hádegismat í stofum.
Mælst er til að nemendur mæti í einhvers konar búningi. Vopn sem fylgihlutir við búninga eru leyfð en ekki til að berjast með.

Hefðbundin stundatafla er lögð til hliðar og í staðinn geta nemendur valið á milli ýmissa verkefna.
Syngja á sviði

  • Limbó
  • Hreyfing í íþróttahúsi
  • Öskupokasaumur
  • Spákonur
  • Grímu- og hattagerð
  • Tölvur
  • Spil og tafl
  • Kubbar
  • Perla
  • Myndataka
  • Diskótek


Foreldrar eru velkomnir í skólann

Regnboginn: Nemendur sem eru alla jafnan í tómstundaheimilinu eftir skóla geta farið þangað kl. 12:15 þegar skóla lýkur. Vinsamlega láta vita í Regnbogann á netfangið gretas@hofsstadaskoli.is ef þið ætlið ekki að nýta ykkur það.


Bestu kveðjur, skólastjórnendur

Til baka
English
Hafðu samband