Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarleyfi og skólastarf haustið 2012

14.06.2012
Sumarleyfi og skólastarf haustið 2012

Skrifstofa Hofsstaðaskóla er lokuð frá 26. júní og opnar aftur miðvikudaginn 1. ágúst n.k. Erindi má senda á netfang skólans: hskoli@hofsstadaskoli.is  

Skólastarf haustið 2012
Skóli hefst miðvikudaginn 22. ágúst með skólasetningu og hefst kennsla fimmtudaginn 23. ágúst samkvæmt stundaskrá. Skóladagatal er að finna hér til hægri á síðunni. Innkaupalistar verða birtir á vefnum föstudaginn 17. ágúst.
Nýir nemendur Í 2.-7. bekk verða boðaðir á fund ásamt foreldrum sínum mánudaginn 20. ágúst kl. 17:30. Fundarboð verður sent með tölvupósti.

Skólasetning miðvikudaginn 22. ágúst
Kl. 9:00 7. bekkur
Kl. 9.30 6. bekkur
Kl. 10.00 5. bekkur
Kl. 10.30 4. bekkur
Kl. 11:00 3. bekkur
Kl. 11.30 2. bekkur

Nemendur í 1. bekk mæta með foreldrum sínum í samtal til umsjónarkennara. Fundarboð verður sent með tölvupósti.

Foreldrar eru velkomnir með börnum sínum á skólasetningu.

Haustfundir með foreldrum verða vikuna 6. - 12. september.

Til baka
English
Hafðu samband