Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kór Hofsstaðaskóla

13.09.2012
Kór HofsstaðaskólaKór Hofsstaðaskóla er að hefja vetrarstarfið. Kórinn er fyrir nemendur í 4.-7. bekk. Í kórnum verða sungin fjölbreytt lög, sígild og popplög, keðjusöngvar og sungið í röddum. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri. Fastir liðir eru að sungið verður í jólamessu Hofsstaðaskóla og settur verður upp söngleikur á vordögum. Auk þess verður tekið þátt í landsmóti barnakóra sem haldið verður í Kópavogi í vor.

Kórgjald fyrir veturinn er 5.000 kr. og fá foreldrar upplýsingar um greiðslufyrirkomulag eftir skráningu. Áhugasamir en óákveðnir nemendur eru velkomnir á æfingu til að kynna sér kórinn áður en ákvörðun um skráningu er tekin.

Æfingar verða á föstudögum kl. 14.00 – 15.00 eða í beinu framhaldi af skólastarfinu.

Stjórnandi kórsins er Unnur Þorgeirsdóttir tónmenntakennari en nálgast má skráningarblöð hjá henni eða hafa samband í netfangið unnur@hofsstadaskoli.is

Það er gaman að syngja í kór, söngurinn göfgar og glæðir auk þess sem félagsskapurinn er skemmtilegur.

Allir eru hjartanlega velkomnir.
Til baka
English
Hafðu samband