Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bangsavika á bókasafninu

24.10.2012
Bangsavika á bókasafninu

Dagana 24. til 26. október 2012 verða bangsadagar á bókasafninu í tilefni af alþjóðlega bangsadeginum sem haldin er hátíðlegur ár hvert. Haldið verður sérstaklega upp á bangsadaginn á bókasafninu með nemendum í 1. bekk. Þeim er boðið að koma á safnið og hlusta á bangsasögu sem nemendur í 6. bekk sjá um að lesa. Þennan dag eru allir bangsar velkomnir með.

Alþjóðlegur bangsadagur er haldinn hátíðlegur víða um heim þann 27. október
Bangsadagurinn fellur ár hvert á fæðingardag Theodore „Teddy“ Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, 27. október.
Roosevelt var mikill skotveiðimaður en dag einn á bjarnarveiðum fann hann svo til með litlum bjarnarhúni að hann sleppti honum lausum í stað þess að skjóta hann. Washington Post birti skopmynd af atvikinu sem vakti heimsathygli.
Búðareigandi í New York var einn þeirra sem heilluðust af sögunni og bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði „Bangsann hans Teddy“ en Roosevelt var gjarnan kallaður Teddy. Bangsinn seldist eins og heitar lummur og brátt fóru leikfangabangsar að ganga undir nafninu „teddy“ í Bandaríkjunum.

Á eftirfarandi síðu er hægt að nálgast skemmtilegt bangsaefni. http://safn.isafjordur.is/bangsar/

 

Til baka
English
Hafðu samband