Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ella umferðartröll í 1. og 2. bekk

03.10.2013
Ella umferðartröll í 1. og 2. bekk

Nemendur í 1. og 2. bekk skemmtu sér vel þegar þeir horfðu á leikritið um Ellu umferðartröll sem sýnt var í Regnboganum í vikunni. Leikritið fjallaði um strák og tröllastelpu sem hafði þurft að fara til byggða. Þau lentu í ýmsum ævintýrum í umferðinni og þá var mikilvægt að kunna umferðarreglurnar. Að lokum fengu nemendur bækling með ýmsum fróðleik. Einnig er hægt að fræðast meira um umferðina á vefnum www.ellaumferdartroll.is 

Kíkið á fleiri myndir á myndasíðunni hjá 1. bekk

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband