Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýr búnaður í tölvustofu

13.01.2014
Nýr búnaður í tölvustofuKennsla hófst aftur í tölvustofunni fimmtudaginn 9. janúar en hún hafði legið niðri frá því snemma í desember þegar vatn flæddi um skólann og eyðilagði tölvubúnaðinn.
Elísabet kennsluráðgjafi og Rúnar húsvörður hafa, í samvinnu við tölvudeild og tryggingarfélagið, unnið hörðum höndum að því að kaupa nýjan búnað og setja hann upp.

Allar tölvur, skjáir, lyklaborð og heyrnartól var endurnýjað, en það er allt af bestu gerð og það finnst varla sú tölvustofa á landinu sem er betur búin en okkar.

Við erum afskaplega þakklát fyrir hversu hratt gekk að endurnýja búnaðinn. Nemendur eru yfir sig ánægðir með nýju tölvurnar.

Sjá fleiri myndir á myndasíðu

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband