Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Upplýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnustöðvunar grunnskólakennara

14.05.2014
Upplýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnustöðvunar grunnskólakennaraKæru foreldrar og forráðamenn
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Félag grunnskólakennara boðað vinnustöðvun þrjá daga, 15. maí, 21. maí og 27. maí.
Þetta þýðir að skólahald fellur niður þessa daga ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma.

Starfsemi tómstundaheimila verður óbreytt verkfallsdagana.

Komi til vinnustöðvunar mun kennsla á vegum Tónlistarskóla Garðabæjar sem alla jafna fer fram inn í grunnskólum fara fram í húsnæði Tónlistarskólans að Kirkjulundi 11. Kennsla nemenda á Álftanesi fer eftir sem áður fram í húsnæði Tónlistarskólans á Álftanesi.

Við biðjum ykkur að fylgjast vel með fréttum að kvöldi nk. miðvikudags og morgni fimmtudags.

Skóladeild Garðabæjar
Til baka
English
Hafðu samband