Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fyrirhuguð vinnustöðvun miðvikudaginn 21. maí

20.05.2014
Fyrirhuguð vinnustöðvun miðvikudaginn 21. maíKæru foreldrar og forráðamenn
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Félag grunnskólakennara boðað vinnustöðvun 21. maí nk. þ.e. á morgun miðvikudag.

Þetta þýðir að skólahald fellur niður ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma.

Starfsemi tómstundaheimila verður óbreytt verkfallsdagana.

Komi til vinnustöðvunar mun kennsla á vegum Tónlistarskóla Garðabæjar sem alla jafna fer fram inn í grunnskólum fara fram í húsnæði Tónlistarskólans að Kirkjulundi 11. Kennsla nemenda á Álftanesi fer eftir sem áður fram í húsnæði Tónlistarskólans á Álftanesi.

Við biðjum ykkur að fylgjast vel með fréttum í kvöld og fyrramálið.

Skóladeild Garðabæjar
Til baka
English
Hafðu samband