Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vika 43 Jákvæður lífsstíll og sjálfsmynd

22.10.2014
Vika 43 Jákvæður lífsstíll og sjálfsmynd

Vika 43, verkefni Samstarfsráðs um forvarnir, hófst mánudaginn 20. okóber. Í vikunni 20. - 27. október  verður kastljósinu beint að ýmsu er varðar forvarnir og félagsstarf meðal barna og ungmenna. Að þessu sinni er áherslan á lífsstíl og sjálfsmynd og vakin athygli á því góða starfi með ungu fólki sem lítur að lífsstíl og félagsstarfi í nærsamfélaginu (heimabyggð). Allir dagar vikunnar verða nýttir til að vekja athygli á virkri þátttöku barna og ungmenna í hvers kyns íþrótta-, félags- og tómstundastarfi.

Á umliðnum árum hefur þátttaka í skipulögðu félagsstarfi stóraukist með bættri aðstöðu og er ótvírætt grunnurinn í þeim góða árangri sem náðst hefur í forvörnum. Með eflingu þessara samtaka og félagsstarfs sem stendur börnum og foreldrum þeirra til boða hefur það einnig gerst að úrræðin hafa færst nær þátttakendum og heimilum þeirra og þannig fært heimafólki meiri ábyrgð og hlutdeild í forvarnastarfi. Árangurinn af áðurnefndu starfi er svo góður að eftir er tekið, m.a. út fyrir landsteinana.

Áminningar um Viku 43 eru sýnilegar á fréttaveitum og samfélagsmiðlum á netinu og þannig reynt að vekja einstaklinga til umhugsunar um mikilvægi samstarfs í forvörnum.

Til baka
English
Hafðu samband