Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gleði og góður andi á HS-leikum

30.10.2014
Gleði og góður andi á HS-leikum

Miðvikudaginn  29. og fimmtudaginn 30. október var hefðbundið skólastarf leyst upp og haldnir HS-leikar eða Hofsstaðaskólaleikar. Markmið leikanna er að nemendur skólans vinni saman að fjölbreyttum verkefnum, allir fái að njóta sín með einhverjum hætti og efla kynni við aðra í skólanum í leiðinni.

Nemendum var skipt upp í hópa þvert á árganga og samanstóð hver hópur af 13-14 nemendum. Elstu nemendur skólans eru fyrirliðar hópanna og gæta þeir þess að öllum líði vel og að hópurinn skili sér á stöðvarnar á réttum tíma, allir séu virkir og samvinnan séð góð. Hver hópur þarf að leysa fjölbreytt verkefni sem reyna á ýmsa færniþætti. Annan daginn leysa nemendur ýmis verkefni í íþróttahúsinu en hinn daginn í skólanum. 

Hægt er að sjá myndir frá leikunum á myndasíðu skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband