Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kórinn hefur vetrarstarfið föstudaginn 4. september.

29.08.2015
Kórinn hefur vetrarstarfið föstudaginn 4. september.

Kór Hofsstaðaskóla er fyrir nemendur í 4.-7. bekk. Í kórnum verða sungin fjölbreytt lög, sígild og popplög, keðjusöngvar og sungið í röddum. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri.Áhugasamir en óákveðnir nemendur eru velkomnir á æfingu til að kynna sér kórinn áður en ákvörðun um skráningu er tekin. Æfingar verða á föstudögum kl. 14.00 – 15.00 eða í beinu framhaldi af skólastarfinu. Fyrsta æfing verður föstudaginn 4. september. Stjórnandi kórsins er Unnur Þorgeirsdóttir tónmenntakennari.

Skráning fer fram með því að senda póst á unnur@hofsstadaskoli.is

Nálgast má skráningareyðublaðið hér og pdf útgáfu af sama eyðublaði hér

Það er gaman að syngja í kór, söngurinn göfgar og glæðir auk þess sem félagsskapurinn er skemmtilegur.

Til baka
English
Hafðu samband