Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skemmtilegt skólahlaup

05.10.2015
Skemmtilegt skólahlaupÞriðjudaginn 29. september sl. fóru nemendur í 5. – 7. bekk gangandi yfir í Kópavog þar sem að skólahlaup UMSK fór fram á Kópavogsvelli. Nemendur kepptu í stúlkna- og piltaflokki í hverjum árgangi fyrir sig. Við í Hofsstaðaskóla áttum tvo nemendur á verðlaunapalli. Sigríður Svava Kristinsdóttir varð í þriðja sæti í flokki 5. bekkjarstúlkna. Eiður Baldvin Baldvinsson var í 1. sæti í flokki 6. bekkjarpilta. Allir nemendur okkar voru sjálfum sér og skólanum til sóma. Myndir frá hlaupinu er að finna á myndasíðu skólans.


Til baka
English
Hafðu samband