Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hvað er orka?

04.11.2015
Hvað er orka?

Mánudaginn 2. nóvember fengu nemendur í 4. bekkjum Hofsstaðaskóla góða gesti frá Landsvirkjun með fræðslu um vindorku. Fræðslan, sem ætluð er grunnskólanemendum, hefur verið á vegum Háskóla Íslands í Háskólalestinni og Háskóla unga fólksins. Sambærileg fræðsla hefur einnig verið haldin reglulega í Vísindasmiðju Háskóla Íslands.

Megin áherslur fræðslunnar felst í spurningunni "Hvað er orka?" og byggir á lifandi umræðum, leik og handavinnu þar sem börnin hanna og smíða sína eigin vindmylluspaða. Þau sem stóðu að fræðslunni í Hofsstaðaskóla voru Jóhanna Hlín Auðunsdóttir og Baldur Brynjarsson efnafræðingur og fyrrum nemandi í Hofsstaðaskóla. Til gamans má geta þess að Baldur var nemandi í  4. ÁS fyrir 15 árum en það var hans gamla bekkjarheiti og gamli kennarinn hans hún Ágústa Steinarsdóttir tók fagnandi á móti honum á nýjan leik.

Það var fyrir tilstuðlan Margrétar skólastjóra og áhuga hennar á verkefninu um haustið og vindinn að nemendur í 4. bekk fengu þessa heimsókn. Hún sýndi verkefninu mikinn áhuga og vildi gjarnan að það tækist vel. Bekkirnir eru nú í óða önn að búa til vindmyllur á ganginum fyrir framan stofurnar sínar og ætla að setja orðin sem þeir hafa verið að safna um vindinn og veðrið á þær. Vindmyllurnar eru úr pappír og ekki 77 metra háar eins og vindmyllurnar sem eru á Hafinu fyrir ofan Búrfellsvirkjun en þær gera sitt gang. Nemendur voru mjög áhugasamir og tóku virkan þátt í vinnunni við smíðina á vindmyllunum enda vel undirbúnir fyrir heimsóknina og eru nú margs fróðari um vindmyllur og orku. Nálgast má myndir frá fræðslunni á myndasíðum bekkjanna:

Myndasíða 4. AH

Myndasíða 4. ÁS

Myndasíða 4. HK

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband