Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Árshátíð 7. bekkja

15.04.2016
Árshátíð 7. bekkja

Glæsileg, frumleg, fjörug og skemmtileg árshátíð nemenda í 7. bekk skólans fór fram fimmtudagskvöldið 14. apríl. Hefð er fyrir því að nemendur fái að velja þema og að þessu sinni varð Frakkland fyrir valinu sem þema árshátíðarinar.

Nemendur sjá sjálfir um að búa til skreytingar og skreyta salinn fyrir kvöldið og útbúa matinn. Þetta gera þeir undir dyggri leiðsögn list- og verkgreinakennara. Nemendur sjá jafnframt um skemmtiatriðin en sá siður hefur skapast að slá upp hæfileikakeppni þar sem þeim sem áhuga hafa býðst að láta ljós sitt skína.

Atriðin voru fjölbreytt og skemmtileg í ár og fóru æfingar fram á göngum skólans í frímínútum, í salnum og hvar sem því var við komið fram að árshátíð.

Einar, Egill og Örvar voru tæknimenn og sáu þeir um að aðstoða keppendur í tengslum við tónlist, lýsingu og útfærslu á atriðinum. Guðbjartur, Húni Páll og Viktor voru sviðsmenn og sáu þeir um að gengi vel baksviðs. Til þess að stórsýning sem þessi gangi snurðulaust fyrir sig þurfa allir nemendur og starfsmenn að leggjast á eitt og hjálpast að. Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur og voru því allir sigurvegarar þetta kvöld sem gekk með eindæmum vel fyrir sig.

Heiðursgestir kvöldsins voru foreldrar nemenda sem fengu að njóta glæsilegra skemmtiatriða.

Dómnefnd kvöldsins skipuðu: Deildarstjóri yngri deildar, foreldri úr skólanum og tveir fyrrverandi nemendur skólans. Þeir áttu úr vöndu að ráða því allir skemmtikraftar kvöldsins stóðu sig afburða vel og atriðin þátttakendum til mikils sóma.

Veittar voru viðurkenningar fyrir nokkur atriði. Skemmtilegasta atriðið var hljómsveitin One Week sem flutti lagið Seven years. Hljómsveitina skipuðu þau: Davíð Freyr, Soffía, Guðrún Ágústa, Magnús og Hrannar Már.  

Benedikt og Markús, eða The boys eins og þeir kölluðu sig, fengu viðurkenningu fyrir frumlegasta atriðið. Þeir dönsuðu við fjölbreytta og skemmtilega tónlist, ólýsanlega skemmtileg og frumleg framkoma og búningar hjá þeim drengjum. Óhætt er að segja að atriðið þeirra hafi vakið mikla kátínu í salnum.

Magnús Stephensen hlaut viðurkenningu fyrir glæsilegasta atriðið en hann spilaði lagið Býflugan á píanó. Happy hópurinn með Gunnar í fararbroddi fékk viðurkenningu fyrir fjörugasta atriðið. Með Gunnari voru þær Lilja, Agnes, Bergþóra, Karen, Guðrún, Helga og Glóey sem dönsuðu.

Að borðhaldi loknu var slegið upp diskóteki. Þá var foreldrum boðið í kaffi og konfekt á kaffistofu starfsfólks á meðan nemendur stigu danssporin.

Myndir frá árshátíðinni eru á myndasíðu 7. bekkja

 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband