Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lesum meira keppnin

09.12.2016
Lesum meira keppnin

Lesum meira er samstarfsverkefni skólasafnskennara og umsjónarkennara í 7. bekk. Frá því í október hafa krakkarnir í 7. bekk verið að lesa bækur af ákveðnum lista (10 bækur) og svo fóru þau í könnun úr bókunum. Fjórir stigahæstu nemendur úr hverjum bekk voru valdir í bekkjarlið til að taka þátt í spurningakeppni sem fram fór á sal skólans þriðjudaginn 6. desember.

Mikil stemning var í skólanum, hvert lið var með sinn liðs lit og mikil spenna var í loftinu. Hver bekkur var búinn að semja stuðningslög sem sungin voru á keppninni. Spurningakeppnin skiptist í fjóra hluta: Hraðaspurningar, vísbendingaspurningar, leikin orð og valflokka. Mikil spenna var í keppninni.

Það var síðan 7. BÓ sem bar að lokum sigur úr býtum við mikinn fögnuð stuðningamanna sinna, 7. HBS varð í öðru sæti og 7. ÖM í þriðja sæti. Keppendur og áhorfendur skemmtu sér konunglega og stóðu sig frábærlega og gengu glaðir út í daginn.

Myndir frá keppninni eru á myndasíðu 7. bekkja

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband