Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinnumorgun í Fjölskyldu og húsdýragarðinum

12.03.2017
Vinnumorgun í Fjölskyldu og húsdýragarðinum

Það er venjan að 6. bekkingar í Hofsstaðaskóla fari á vinnumorgun í Húsdýragarðinum. Nemendum er skipt í þrjá hópa. Einn hópurinn tók að sér hestana og fjárhúsið, annar sinnti svínum og fjósi og sá þriðji refum og hreindýrum. Krakkarnir sinna almennri umhirðu dýranna, hreinsa undan þeim, kemba og gefa að borða. Dagurinn var svo kláraður með því að hver hópur fyrir sig tók saman kynningu þar sem starf dagsins var kynnt fyrir hinum hópunum. Ferðin tókst einstaklega vel og fóru allir glaðir heim. Skoða má myndir frá heimsókninni á myndasíðu bekkjarins

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband