Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Árlegur íþróttadagur

07.06.2017
Árlegur íþróttadagurMiðvikudaginn 7. júni var íþróttadagur hjá okkur í Hofsstaðaskóla. Þá fóru allir út starfsfólk og kennarar og tóku þátt í ýmsum leikjum á fjölbreyttum stöðvum sem settar voru upp víðs vegar á skólalóðinni. Fremur kalt var í veðri en nemendur létu það ekkert á sig fá og hreyfðu sig því meira.  Eftir alla útiveruna gæddu nemendur sér á grilluðum pylsum og safa áður en safnast var saman í íþróttahúsinu Mýrinni. Þar fór fram árleg keppni milli kennara og nemenda 7. bekkja í kapphlaupi, reipitogi og kókosbolluáti. Nemendur unnu boðhlaupið með yfirburðum en kennarar tóku næstu tvær þrautir, reipitog og kókosbollukappátið og urðu því heildarsigurvegarar. Allir tóku svo smá ásadans áður en haldið var heim á leið með gleði í hjarta og bros á vör.

Íþróttakennararnir Guðrún Arna, Hreinn og Ragga Dís höfðu umsjón með skipulagi íþróttadagsins.

Kíkið á myndirnar á myndasíðu skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband