Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra 1. bekkinga

23.02.2018
Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra 1. bekkinga

Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2018 verður haldinn í skólanum fimmtudaginn 1. mars nk. kl. 17.30-18.30.
Nemendur og starfsmenn kynna skólann og segja frá því sem þeim finnst markverðast í starfinu. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið Regnbogann í fylgd nemenda og starfsmanna.
Foreldrar annarra nýnema eru velkomnir á kynninguna. 
Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað heimsókn eftir samkomulagi. S: 590-8100. 
Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.

Stjórnendur

Til baka
English
Hafðu samband