Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Blár dagur

04.04.2018
Blár dagur

Föstudaginn 6. apríl eru allir hvattir til að klæðast bláu í tilefni af vitundar- og styrktarátakinu BLÁR APRÍL til að sýna einhverfum stuðning og samstöðu. Atburðurinn er nú haldinn í fimmta sinn og er það er Styrktarfélag barna með einhverfu sem stendur að bláa deginum en markmið dagsins er að vekja athygli á einhverfu og safna fé til styrktar málefnum er varða börn með einhverfu. 

Á fyrsta starfsári félagsins leiddi styrktarátakið til þess að hægt var að gefa öllum grunnskólum landsins sérkennslugögn að andvirði fimm milljóna króna. Árið eftir var styrktarféð nýtt til að koma á námskeiði fyrir foreldra og aðstandendur barna með einhverfu, þátttakendum að kostnaðarlausu. Þörfin leyndi sér ekki og aðsóknin var slík að félagið hefur haldið námskeiðin æ síðar og þátttakendur farnir að nálgast 500. Í fyrra leiddi afrakstur styrktarátaksins til þess að hægt var að gefa út vandað fræðslumyndband um einhverfu sérstaklega ætlað börnum. Þar fóru Ævar vísindamaður og drengurinn Dagur ofan í saumana á einhverfu og fékk myndbandið frábærar viðtökur. Nú í ár kemur út sjálfstætt framhald af fræðslumyndbandinu, að þessu sinni með henni Maríu í aðalhlutverki, sem frumsýnt verður fyrir bláa daginn á blarapril.is.

Leiðir til að styðja og styrkja málefnið:

o Klæðast bláu föstudaginn 6. apríl og birta myndir á samfélagsmiðlum merktum #blarapril
o Ræða við börnin ykkar um einhverfu og horfa saman á fræðslumyndböndin á blarapril.is
o Hringja í síma 902 1010 og styrkja málefnið um 1000 krónur
o Kaupa Bláu næluna, samstöðumerki átaksins, (eða aðrar vörur) á verslun.blarapril.is
o Mæta á styrktartónleika Blás apríls, föstudagskvöldið 6. apríl í Gamla Bíó – sjá nánar á miði.is
o Einnig er tekið við frjálsum framlögum á blarapril.is
o Fylgjast með fréttum af átakinu á facebook síðu styrktarfélagsins: facebook.com/einhverfa


Við þökkum fyrir stuðninginn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest í bláu föstudaginn 6. apríl. Stöndum saman og fögnum fjölbreytileikanum. Því lífið er blátt á mismunandi hátt! #blarapril
Myndir frá Bláa deginum undanfarin ár #blarapril

Styrktarfélag barna með einhverfu

Til baka
English
Hafðu samband