Meistari Kjarval í myndmennt
![Meistari Kjarval í myndmennt Meistari Kjarval í myndmennt](/library/Myndir/2014-2015/6.-bekkur/6bSameiginlegt/Landsslagsmyndir-nemenda-i-myndmennt/IMG_5505.jpg?proc=ContentImage)
Nú vekja fallegar myndir frá nemendum í 6. bekk athygli þeirra sem framhjá ganga í list- og verkgreinaálmu skólans á neðri hæð. Myndirnar eru afrakstur vinnu í myndmenntartímum 6. bekkja hjá Sólrúnu Guðbjörnsdóttur. Í 6. bekk er myndmenntin kennd í 11 vikna lotu. Á námskeiðinu byrja nemendur á andlitsmynd, sjálfsmynd þar sem unnið er með hlutföll, einnig er unnið með blýantsteikningar, málverk og unnið portret í leir. Lokaverkefnið er svo umfjöllun um meistara Kjarval og lætur Sólrún nemendur vinna myndir útfrá landslagsmyndum hans. Stefnt er að því að fara á Kjarvalsstaði í vetur til að fá verkin beint í æð en nemendur eru búnir að afla sér upplýsinga af netinu og skoða ýmis verk. Meðfylgjandi myndir eru sýnishorn af landsslagsmyndum nemenda sem nú eru að ljúka myndmenntalotunni sinni.
Skoða myndirnar á myndasíðu 6. bekkja