Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tröllaverkefni

07.11.2008
Tröllaverkefni

Það er líf og fjör þessa dagana hjá nemendum í 3. og 4. bekk. Þeir eru að vinna að stóru verkefni saman um tröll. Það er föndrað, málað, skrifað, litað, teiknað og jafnvel dansað á ganginum fyrir framan kennslustofur 4. bekkja. Við bíðum í eftirvæntingu eftir að berja dýrðina augum því á neðri hæðinni er að rísa stórkostlegt ævintýraland trölla. Það er mjög skemmtilegt að rölta um ganginn, hlusta á tónlistina sem ómar í hverju horni og sjá kraftmikla og káta krakka á fullu í vinnu.

 

Til baka
English
Hafðu samband