Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Viðbragðsáætlun

02.09.2009

Viðbragðsáætlun Almannavarna fyrir Hofsstaðaskóla liggur nú fyrir í 1. útgáfu. Reiknað er með að áætlunin verði uppfærð árlega. Viðbragðsáætlunin segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða í Hofsstaðaskóla í Garðabæ í samræmi við áætlun Almannavarna um viðbrögð við heimsútbreiðslu inflúensu. Markmið viðbragðsáætlana skóla eru að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnana sem og starfsmanna þeirra þegar til inflúensufaraldurs kemur.
Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr. 82/2008 og lög um sóttvarnir nr. 19/1997.

Hér má nálgast viðbragðsáætlun almannavarna og  leiðbeiningar Vinnuverndar um handþvott.

Til baka
English
Hafðu samband